The Factory 2024: Hendur á hreyfingu, ofin framtíð stendur yfir frá 1 júní til 20 september, 2024, í gömlu síldarverksmiðjunni í Djúpavík

Listamennirnir á sýningunni The Factory 2024: Hendur á hreyfingu, ofin framtíð, hafa þvert á kynslóðir, hæfifileikasvið og þjóðerni, dregið innblástur frá hafifinu, sjálfbærum möguleikum náttúrunnar og viðhorfum til handverks.

Handverk lýsir þeim hæfifileikum sem fólk þarf að búa yfifir til þess að skapa eitthvað frá grunni. Afrakstur handverks getur dregið fram eiginleika efniviðarins, mikilvægi náttúrunnar sem innblásturs og verðmæti einfaldleikans, notagildis og fegurðar. Endurtekningin sem handverk krefst gerir það að verkum að hendur og hugur geta aldrei reikað of langt frá hvort öðru. Þegar hönd, hugur og hreyfifing mætast verður sköpunin til. Sköpunin hleypir líkamleika og flflæði aftur inn í meðvitundina og hversdagslífifið, og á sama tíma hjálpar hún okkur að tengjast þekkingu og lifnaðarháttum fyrri tíma.

Seglagerð, netagerð, kaðlagerð og áttavitasmíði eru allt dæmi um störf unnin af sérhæfðu handverksfólki. Gamla síldarverksmiðjan, söguleg byggingarlist hennar og handgerð smíði er þess vegna upplagður bakgrunnur fyrir þema ársins. Sýningin sækir innblástur í erfifiðisvinnu þeirra sem störfuðu í verksmiðjun- ni. Áhersla er lögð á hefðbundna handavinnu á borð við saumaskap, þæfifin- gu og útsaum í verkum sem innihalda blaktandi borða, ullarfígúru og kápu sem er í laginu eins og sporður hvals. Samhliða þessu eru verk sem nálgast efnið út frá vistvænni fantasíu og draumkenndum heimi, ljóðum, innsetningu úr þara, plastskepnu og bæli gert úr gervi- og náttúruefni. Sýningin leggur til að handverk, hvort sem er hefðbundið eða nýstárlegt, eigi sér sameiginlegan uppruna – lífsbaráttuna og þörfifina fyrir samruna líkama og hugar.

Listaverkin kalla fram fegurð og segja sögur, og bjóða á sama tíma upp á tækifæri til þess að hægja á ferðinni og hampa sköpunarferlinu. Þannig ge- tur handverk, það að vinna með höndunum og sú hæfni sem byggir bæði á nútímaþekkingu sem og verkviti fortíðinnar, verið undirstaða fyrir vellíðan, sál- fræðilega endurheimt og heilandi framtíð.

“Handverk er það nafn sem gefið hefur verið óþreytandi eðlishvöt mannsins, lönguninni til þess að vinna verk vel til þess eins að hafa unnið það vel.”

– Richard Sennett, The Craftsman

Opnunartímar

Opið daglega 10.00 -18.00

Aðgangur ókeypis

Listamenn

Jonna Jónborg Sigurðardóttir (IS), Kadri Liis Rääk (EST), Karni & Saul (UK), Kathy Clark (US/IS), Katrín Þorvaldsdóttir (IS), Laurita Siles (Baskaland) with Elías Knörr (IS) and Edurne González Ibáñez (Baskaland), Nikki Ummel (US), Penelope Payne (UK), Raimonda Sereikaitė – Kiziria (LI/IS), Wanxin Qu (CH).

Sýningarstjóri

Emilie Dalum

Haldið af

Hótel Djúpavík

Styrktaraðilar

Hótel Djúpavík, Myndlistarsjóður, Uppbyggingarsjóður Vestfjarða og Orkubú Vestfjarða

Samstarfsaðilar

Listaháskóli Íslands og Baskavinafélagið á Íslandi

Takk

Hótel Djúpavík & starfsfólk, allir listamenn & aðstoðarfólk, Björgvin Agnarsson, Iðunn Jónsdóttir, Laura Wiemers, Sirin Sponga, Gabriel Dunsmith, Þórunn Þorsteinsdóttir – og gamla síldarverksmiðjan

Námskeið og samtal við leikstjóra

The Factory heldur, í samstarfi við Baskavinafélagið á Íslandi, námskeið um hljóðfæragerð, ‘Hafið, sjálfbærni og endurnýting’: vinnustofa í gerð hljóðfæra úr rusli. Námskeiðið verður á vegum Intelligent Instruments Lab þann 6.-7. júní og lýkur með tónleikum síðdegis þann 7. júní. Þórhallur Magnússon frá Intelligent Instruments Lab leiðir vinnustofuna.

Í seinni hluta júlí mun sýningargestum svo standa til boða samtal við Karni & Saul, leikstjóra stuttmyndarinnar Wild Summon.