![](https://djupavik.is/wp-content/uploads/2015/12/75523_674795435872255_1200329788_n.jpg)
Djúpavíkurhringurinn
Stutt gönguleið (u.þ.b. 5 km) sem hefst í Djúpavík. Gengið er eftir stikaðri leið upp á klettahjallann fyrir ofan þorpið, þar sem fossinn fellur fram af brúninni. Stórkostlegt útsýni yfir fjörðinn er ferðarinnar virði. Tekur u.þ.b. 2 klst. (eða lengur ef oft er stoppað).